Það sem var, er og verður vonandi...
mál að linni?
<description>Kannski............
áskorun
<description>Það ykkar sem verður númer tíu þúsund skal þó í það minnsta
andskotast til að kvitta fyrir sig............
ferííííí
<description>Nú er ég kominn í sumarfrí og við Herdís ætlum að hafa það gott
núna heima alla daga þangað til Sigrún er komin í sumarfrí.....og í
millitíðinni þurfum við að slökkva nokkra elda hér og þar um
Nú ætlar Geir Ólafs að koma Nancy Sinatra á klakann. Gott málefni
út af fyrir sig, og reyndar vonandi að honum takist það, ætli maður
Riffilkíkirinn minn kom um daginn, brilljant verkfæri, svo nú hef
ég engar afsakanir fyrir að hitta ekki það sem ég skýt á.
Felulitatjaldið kemur von bráðar og ég þarf að láta hlaða fleiri
skot fyrir mig og þá fer þetta að verða gott!!
ferðalög
<description>Mér dettur einna helst í hug Chris Rea, maðurinn enda með eindæmum
Ég fer í sumarfrí 1. júlí. Hafi lesendur fram að færa séróskir um
heimsóknir eða vinnu látið vita ekki seinna en að kveldi 29. þessa
Annars eru uppi plön um gagngerar endurbætur á garðinum, það getur
endað í einhverjum hundruðum þúsunda en það er í góðu lagi því að
síðasta ríkisstjórn bjó svo vel í haginn fyrir verkafólk. Ég sé
ekki fram úr augum fyrir handbæru fé og ætla að láta eitthvað af
hendi rakna við lögfræðinginn á efri hæðinni því að kröpp eru kjör
langskólagenginna.
kjör
<description>Mér finnst að við ,sem Júróvisjón þjóð, eigum að viðhalda þeirri
umfjöllun sem Eiríkur Hauksson hefur fengið. Við ættum að senda
Andreu Gylfa næst og svo Garðar Thor eða Magna, eftir því hvernig
stemningin verður. Ekkert sjóv, engin alteregó. Atvinnufólk og
ekkert annað. það er alltof mikið glimmer í þessari keppni.
áróður
<description>Ég vil ekki hafa "banner" frá framsóknarflokknum þarna fyrir ofan.
Er þetta í einhverju sambandi við fyrri pistil? Aldrei að vita,
nema þeir ætli að gera eitthvað fyrir mig og mína......
af verkamönnum
<description>Er raunverulega einhver verkamaður sem sér sér hag í að kjósa yfir
Heyrði um daginn óbreyttan vörubílstjóra segja að hann treysti ekki
vinstri flokkunum til að stjórna þessu landi, og engum nema
framsókn og sjálfstæði. Skrítið. Það eru flokkarnir sem ég treysti
Ef einhver flokkurinn kemur nú fram og segist vilja gera mér fært
að eignast þak yfir höfuðið án þess að það geri mig hartnær
gjaldþrota þá kýs ég hann. Það gengur ekki að segja þeim lægst
launuðu endalaust að þau verði bara að lifa spart. Við erum búin að
lifa nógu spart nógu lengi og sjá aðra fitna af okkar peningum. Ég
vil breytingar. Þjóðin vill breytingar. Bankakerfið er að drepa
verkafólk í landinu í stórum stíl, og engir aðrir en
ríkisstjórnarflokkarnir hafa gert þeim það kleift. Loksins núna er
farið að reyna að skakka leikinn milli þeirra sem lifa af laununum
sínum eftir bestu samvisku, telja rétt fram og borga skuldirnar
sínar, og þeirra sem greiða ekki af lánum, greiða ekki skatt,
greiða ekki kaupleigu og borga ekki af húsunum sínum eða
tryggingar......ó ekki tala við mig um tryggingar!!!!! Svo ef á að
gera viðkomandi upp þá er það allt í lagi, ekkert til til að gera
upp og fjárglæframaðurinn gengur síðan af stað vikuna eftir og
Er ekki annars skrítið að það eru yfirleitt einstæðir, velmenntaðir
og vel stæðir karlmenn sem predika frjálshyggju?
vinnusemi
<description>Nú er ég búinn að klára ellefu daga af tólf daga vinnutörn á tvenns
konar vöktum, þriðju törnina frá mánaðarmótum og þetta ástand á að
vara fram í endaðan mars.....að minnsta kosti.
vikunnar eða mánaðarins er og hápunktur hvers dags er orðinn að
hjartans lyst og tekst með æfintýralegum hætti að rennbleyta sjálfa
undir kerruna hennar Herdísar þannig að við þurfum ekki að koma
að kaupa Black Adder á netinu og bíðum nú eftir á pakkinn komi frá
brainstorm
<description>Hvaða lög ætti ég að taka með ballhljómsveitinni sem ég er að fara
af stað með?
svona er það
ekki skrýtið.
aftur
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um
þig?
ammli
<description>Glacier hefur nú að afstöðnu 28. afmæli sínu ákveðið eftirfarandi:
1. Sigrún er best, hún gaf mér sokka og bók og lét renna í bað og
nuddaði á mér bakið og gaf mér góðan mat og gerði allt sem hún gat
2. Stína og Kamilla og Lovísa og Patrekur og Gunna frænka og Gæi og
3. Dóttir mín er í sérflokki og verður þess vegna ekki uptalin
Takk fyrir mig. Ég ætla í hreindýr þegar ég verð þrítugur.
glacierstaðir hinir síðari
<description>Hér erum við nú og hér ætlum við að vera næstu árin, það verður
ekki umflúið, Sigrún neitar að flytja fyrr en eftir fimm ár að
Hér er ágætt að vera, hef orðið var við aukningu í gestagangi eftir
að helvítis hanabjálkinn er úr sögunni, bróðurbörnin mín koma
reglulega til að fá gott í magann, nýkomin frá Rúnari og Ástu á
horninu og skrölta svo til Mumma og Helgu á endanum áður en þau
Var að vinna í gær, þvert á fyrirætlanir. Er svo aftur að vinna í
dag, sömuleiðs þvert á ætlanir. Jæja, maður fær aðeins í vasann
illa gengur það
<description>Það er alveg merkilegt hvers konar raunir þarf að ganga í gegnum
til að koma sér upp sómasamlegu þaki yfir höfuðið! Tilboð, útboð,
gylliboð, ofboð og allskyns boð. Allt vegna þess að mann langar
ekki að húka í pínu kofa uppi í rjáfri einhversstaðar ýmist í
skítakulda eða funhita og einskis millivegar. Sumum finnst eins og
maður megi nú bjóða meira (seljendur) meðan öðrum þykir allt of
mikið sett á eignina (kaupendur). Mér þykir orðið nóg um. Með þetta
að leiðarljósi ætla ég ekki að flytja aftur næstu árin. Þar sem mig
ber niður næst, þar verð ég og sá sem fyrir er getur bara sætt sig
við það og annaðhvort verið þar með mér eða farið. Af hverju skyldi
Las bók Simons Wiesenthal um daginn og þykir stórmerkilegt að maður
sem hafi lifað aðrar eins hörmungar af og hann, og að auki misst
eigur sínar allar til þjóðar sem komin var í land hans af eigin
frumkvæði, geti samvisku sinnar vegna heimtað í krafti búsetu fyrir
Bein tilvitnun: "Þjóð, sem verður fyrir því að önnur þjóð kemur til
lands hennar, verður að sætta sig við sambýli hennar, lög hennar og
Takk fyrir Simon Wiesenthal.
helgarfrí
<description>Ég er kominn í helgarfrí, þó reyndar verði ég að eyða því fríi í
Ég er orðinn veiðivörður (af hverju ætli veiðiverðir séu annaðhvort
frá Holti eða Miðhúsum, pæling!!) og verð á ferðinnii sem slíkur um
Af gefnu tilefni vil ég taka það fram að skáldið er undaþegið
veiðum fram í miðjan ágúst......